Fóru að versla og fundu svo ekki bílana

Óhætt er að segja að verkefni lögreglunnar séu af ýmsum …
Óhætt er að segja að verkefni lögreglunnar séu af ýmsum toga. mbl/Arnþór

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bendir á, að það geti verið ruglingslegt að hafa tvo bíla til umráða. T.d. þegar maður hefur lagt öðrum þeirra í bílastæði á meðan erindum er sinnt og kemur svo til baka á bílastæðið og heldur að maður hafi verið á hinum bílnum. Þetta kemur fram í skondinni Facebook-færslu lögreglunnar.

„Þetta gerðist einmitt um daginn og auðvitað í Hafnarfirði, nema hvað. Þá fór ónefndur maður í verslun Krónunnar, sem er við hliðina á lögreglustöðinni á Flatahrauni, og þegar innkaupunum var lokið fann hann ekki bíllinn sinn og hélt að honum hefði verið stolið. Maðurinn fór því á lögreglustöðina og tilkynnti um málið,“ segir í færslu lögreglunnar. 

Þá segir, að á vaktinni hafi verið gamalreyndur og skilningsríkur lögreglumaður sem hafi komist að hinu sanna eftir smá þóf og maðurinn gat því snúið aftur í rétta bílinn og haldið sína leið.

Sama saga hálftíma síðar

„Rúmlega hálftíma síðar gerðist hið ótrúlega að annar maður kom á lögreglustöðina og tilkynnti að bílnum hans hefði einnig verið stolið. Sá var víst líka búinn að ganga heillengi um bílastæðin við Krónuna í leit að bílnum. Honum var sögð sagan af fyrri manninum og þá rann upp ljós. Hann var sömuleiðis með vitlausa bíllykla í hendinni, leitandi að vitlausum bíl.

Lögreglumaðurinn sagði að fyrri maðurinn hefði verið útlendingur en sá seinni Íslendingur. Hann fullyrti jafnframt að mennirnir væru ekki Hafnfirðingar,“ segir í færslu lögreglunnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert