Blautt í dag

Regnkápan kemur að góðum notum í dag.
Regnkápan kemur að góðum notum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Veðurstofan spáir fremur hægri suðlægri átt og víða rigningu eða skúrum í dag. Síðdegis gengur í suðvestan 8-13 m/s, og styttir upp austan til en áfram skúrir á vestanverðu landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.

Víða suðvestan 5-10 á morgun og skúrir, en víða bjartviðri um austanvert landið. Vestlæg átt á þriðjudag og úrkomulítið og áfram svipaður hiti.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. 

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert