Gréta María stýrir matvælasjóði

Gréta María Grétarsdóttir er nýr formaður stjórnar matvælasjóðs en hún …
Gréta María Grétarsdóttir er nýr formaður stjórnar matvælasjóðs en hún var áður framkvæmdastjóri Krónunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað stjórn matvælasjóðs. Alþingi samþykkti nýverið frumvarp ráðherra um stofnun sjóðsins en hlutverk hans er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Matvælasjóður verður til með sameiningu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi. Unnið hefur verið að stofnun sjóðsins undanfarið ár í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu en ákveðið var að flýta vinnu við að setja sjóðinn á fót sem hluta af aðgerðum til að bregðast við áhrifum COVID-19. Alls verður 500 m.kr. varið til stofnunar sjóðsins á þessu ári.

Stjórnin er skipuð til þriggja ára og er þannig skipuð:

  • Gréta María Grétarsdóttir, án tilnefningar, formaður.
  • Gunnar Þorgeirsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
  • Karl Frímannsson, án tilnefningar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert