Loftnetin trufla farsímasamband

Tekið skal fram að kötturinn hangir ekki í örbylgjuloftneti.
Tekið skal fram að kötturinn hangir ekki í örbylgjuloftneti. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Á undanförnum vikum og misserum hefur í vaxandi mæli orðið vart við truflanir á farsímasambandi á höfuðborgarsvæðinu sem tengist bilun í örbylgjuloftnetum.

Loftnetin voru notuð til að dreifa Fjölvarpinu fram til 2017 þegar þeim útsendingum var hætt. Örbylgjuloftnetin eru enn víða á húsum og ef þau eru enn í sambandi við rafmagn veldur það truflunum á farsímasambandi í og við þau hús samkvæmt upplýsingum frá Póst- og fjarskiptastofnuninni, PFS.

Dæmi um truflanir:

  • Minni gæði á talsambandi farsíma
  • SMS komast ekki til skila í fyrstu tilraun
  • Símtöl ná ekki í gegn í fyrstu tilraun og þau slitna
  • Streymi er hægt og höktir
  • Almenn netþjónusta og gagnaflutningur er hægur
Loftnetin voru notuð til að dreifa Fjölvarpinu fram til 2017 …
Loftnetin voru notuð til að dreifa Fjölvarpinu fram til 2017 þegar þeim útsendingum var hætt. Af vef Póst- og fjarskiptastofnunar

PFS í samstarfi við fjarskiptafélögin, Nova, Símann og Vodafone, mun í júní og júlí standa fyrir átaki til að finna þessar truflanir, og vinna bug á þeim.

Örbylgjuloftnetin eru útbreidd á höfuðborgarsvæðinu, s.s. í Vesturbænum, Fossvogi og á ákveðnum svæðum í Kópavogi og Hafnarfirði. Útsendingar Fjölvarpsins náðu einnig til Akraness, Selfoss og Reykjanesbæjar.

Örbylgjuloftnet.
Örbylgjuloftnet.

Talið er að allt að 20-30 þúsund loftnet geti verið að valda truflun og er verkefnið því viðamikið. Til að komast fyrir þessa truflun sem fyrst og á sem skemmstum tíma biðlar PFS til húseigenda á þessum svæðum að ganga í lið með stofnuninni við að uppræta truflunina.

„Það er hægt að gera með þeim einfalda hætti að kanna fyrst hvort örbylgjuloftnet sé að finna á húsum og ef svo reynist, þarf að finna út úr því hvort þau séu enn þá tengd rafmagni og taka spennugjafa þeirra úr sambandi ef svo er.

Örbylgjuloftnet.
Örbylgjuloftnet.

Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar PFS, leggur áherslu á að stofnunin sé að leggja umtalsverðan tíma og viðbótarmannafla til verkefnisins, m.a. með því að ráða 6 sumarstarfsmenn til að sinna bilanaleit og verktaka til að aðstoða húseigendur við að aftengja búnað þegar þess er þörf,“ segir í tilkynningu.

PFS hefur sett upp sérstaka leiðbeiningasíðu á vef stofnunarinnar þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um  búnaðinn og hvernig hann skal aftengdur.

Örbylgjuloftnet.
Örbylgjuloftnet.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert