Loka Búðardal.is í mótmælaskyni

„Þetta geta forsvarsmenn vefsíðunnar Búðardalur.is ekki sætt sig við en …
„Þetta geta forsvarsmenn vefsíðunnar Búðardalur.is ekki sætt sig við en þeir bera hagsmuni og framtíð Dalanna meira fyrir brjósti en núverandi sveitarstjórn virðist gera.“

Vefsíðunni Búðardalur.is hefur verið lokað í mótmælaskyni vegna samþykktar sveitarstjórnar Dalabyggðar á breytingu á aðalskipulagi vegna vindorkuvers, sem samkvæmt tilkynningu frá Búðardal.is þýðir að mikill hluti jarðanna Sólheima og Hróðnýjarstaða í Laxárdal muni breytast úr landbúnaðarjörðum í iðnaðarsvæði fyrir fyrirhuguð vindorkuver.

„Þetta geta forsvarsmenn vefsíðunnar Búðardalur.is ekki sætt sig við en þeir bera hagsmuni og framtíð Dalanna meira fyrir brjósti en núverandi sveitarstjórn virðist gera.“

Því hafi vefsíðunni verið lokað ásamt vefmyndavél sem staðsett hefur verið í Búðardal og aðgengileg á vefnum síðan 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert