Múlaþing hlutskarpast

Nýtt sam­einað sveit­ar­fé­lag Borg­ar­fjarðar­hrepps, Djúpa­vogs­hrepps, Fljóts­dals­héraðs og Seyðis­fjarðar­kaupstaðar fær heitið …
Nýtt sam­einað sveit­ar­fé­lag Borg­ar­fjarðar­hrepps, Djúpa­vogs­hrepps, Fljóts­dals­héraðs og Seyðis­fjarðar­kaupstaðar fær heitið Múlaþing ef ný sveitarstjórn fer eftir niðurstöðum atkvæðagreiðslu sem fram fór í sveitarfélaginu samhliða forsetakosningum um helgina.

Múlaþing var það nafn á nýtt sameinað sveitarfélag á Austurlandi sem flestir völdu í atkvæðagreiðslu og nafnakönnun sem efnt var til eystra í gær samhliða forsetakosningum. Niðurstöður talningar lágu fyrir á níunda tímanum í gærkvöldi.

Kjósendum var heimilt að velja tvö nöfn að því gefnu að auðkennt væri fyrsta og annað val. Úrslit þegar aðeins var talið fyrsta val voru að 731 valdi nafnið Múlaþing, Drekabyggð 619
Austurþing 405, Múlaþinghá 187, Múlabyggð 164 og 54 Austurþinghá. Þegar saman var talið fyrsta og annað val breyttist röð nafnanna ekki en samanlögð atkvæði í fyrsta og annað val féllu þannig:

  • Múlaþing 1.028
  • Drekabyggð 774
  • Austurþing 645
  • Múlaþinghá 332
  • Múlabyggð 329
  • Austurþinghá 131

Aðeins um helmingur kjósenda nýtti þann rétt sinn að velja tvö nöfn, en aðrir völdu aðeins einn kost. Auðir seðlar voru 35 og ógildir 37.

Niðurstöðurnar er ekki bindandi en ganga til nýrrar sveitarstjórnar sem kjörin verður í september og mun hún velja sveitarfélaginu nafn sem tekur við af Borg­ar­fjarðar­hreppi, Djúpa­vogs­hreppi, Fljóts­dals­héraði og Seyðis­fjarðar­kaupstað. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert