Í fullu samræmi við reynslu ASÍ

ASÍ skorar á ferðaþjónustufyrirtæki til að axla ábyrgð á brotum …
ASÍ skorar á ferðaþjónustufyrirtæki til að axla ábyrgð á brotum gegn erlendu starfsfólki mbl.is/Hari

„ASÍ skorar á ferðaþjónustufyrirtæki og samtök atvinnurekenda að axla þegar í stað ábyrgð á brotum gegn erlendu starfsfólki og fyrirbyggja slík brot til framtíðar, þar á meðal með því að tryggja fræðslu til rekstraraðila.“

Þetta kemur fram í tilkynningu ASÍ um nýja skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála um aðstæður erlends starfsfólks í ferðaþjónustu. Þar segir að niðurstöður skýrslunnar séu í fullu samræmi við fyrri skýrslur um sama efni og við reynslu stéttarfélaga og Vinnustaðaeftirlits ASÍ.

Verkalýðshreifingin sökuð um lygar

Í skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála segir að algengustu brot sem erlent starfsfólk verður fyrir eru vegna vangreiddra launa og brota á reglum um hvíldartíma og frítíma. Þá hafa komið upp dæmi þar sem fólk vinni full störf og jafnvel meira fyrir lítil eða engin laun, og að sjálfboðastörf séu notuð sem yfirvarp.

Mörg dæmi eru um að fólk þori ekki að hafa samband við stéttarfélög af ótta við brottrekstur eða vegna slæmrar reynslu af stéttarfélögum í heimalandi.

„Verkalýðshreyfingin hefur ítrekað verið sökuð um að ljúga og fara offari þegar greint er frá aðbúnaði og kjörum erlends starfsfólks.” Segir María Lóa Friðjónsdóttir, verkefnastjóri Vinnustaðaeftirlits ASÍ.

„Skýrsla Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála er mikilvægt innlegg því hún sýnir svart á hvítu það sem fyrri úttektir og reynsla stéttarfélaganna hafa bent til, það er að réttur erlends launafólks í ferðaþjónustu er víða fyrir borð borinn. Þetta er fullkomlega í samræmi við þann veruleika sem við í Vinnustaðaeftirliti ASÍ höfum orðið vitni að og kallað eftir aðgerðum gegn.“

ASÍ kallar eftir því að loforð lífskjarasamninganna um lagalegar heimildir til refsinga vegna brota á kjarasamningum verði uppfyllt, og segir það ólíðandi að slík brot viðgangist refsilaust. Einnig þurfi að að tryggja heimildir Vinnustaðaeftirlits stéttarfélagana og opinberra eftirlitsaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert