Lögreglumenn í sóttkví hafi ekki fengið greitt

Í þeim tveimur tilvikum þar sem lögreglumenn þurftu að fara í sóttkví vegna afskipta af einstaklingum sem grunur lék á að væru með COVID-19 smit er afstaða yfirmanna þeirra að þeir eigi ekki rétt til greiðslna á meðan þeir dvelja í sóttkví né fái þeir aukinn frítökurétt vegna vaktafrídaga sem þeir eiga að fá á meðan þeir eru í sóttkvínni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB. 

Bandalagið hefur sent öllum lögreglustjórum á landinu bréf þar sem farið er fram á að lögreglumenn sem þurfa að fara í sóttkví vegna gruns um COVID-19 smit verði greitt fyrir þann tíma sem þeir þurfa að vera í sóttkví og vaktafrí frestist þar til þeir eru lausir úr henni.

Hafa ekki val um að sinna útkalli

„Lögreglumenn eru framlínufólk í öllum skilningi þess orðs. Þeir mæta almennt fyrstir á vettvang og hafa ekki val um það hvort þeir sinni útkalli þegar eftir þjónustu þeirra er leitað. Þeir eru oftar en ekki ómeðvitaðir um það hvað bíður þeirra og eru berskjaldaðir gagnvart utanaðkomandi ógn eins og smitsjúkdómum,“ segir meðal annars í bréfi BSRB til lögreglustjóranna.

BSRB telur óásættanlegt að framlínufólki eins og lögreglumönnum sé ekki bættur sá frítími sem þeir neyðast til að eyða í sóttkví vegna þess að þeir hafa orðið útsettir fyrir smiti af lífshættulegum sjúkdómi í störfum sínum.

„BSRB gerir þá kröfu að lögreglumenn fái greiddar yfirvinnustundir fyrir þann tíma sem þeir verja í sóttkví utan skilgreindra vakta. Það sé eðlilegt endurgjald fyrir þá áhættu sem þeir taka í sínum störfum og þá staðreynd að þeir glata dýrmætum frítíma af þeim sökum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert