Öll sem létust voru pólskir ríkisborgarar

Nöfn þeirra sem létust verða ekki gefin upp að ósk …
Nöfn þeirra sem létust verða ekki gefin upp að ósk aðstandenda. Íris Jóhannsdóttir

Rannsókn lögreglu á bruna við Bræðraborgarstíg miðar vel og hafa kennsl einstaklinganna þriggja sem létust í brunanum verið staðfest af kennslanefnd Ríkislögreglustjóra. Þau sem létust voru öll pólskir ríkisborgarar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Nöfn þeirra sem létust verða ekki gefin upp að ósk aðstandenda. Einn þeirra sem slasaðist í brunanum er enn á gjörgæslu. 

Lögregla getur ekki tjáð sig frekar um framvindu rannsóknarinnar að svo stöddu. 

Frá samstöðufundi við aðstandendur hinna látnu.
Frá samstöðufundi við aðstandendur hinna látnu. mbl.is/Arnþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert