Munar hálfum milljarði á kostnaði og tekjum

Tekjurnar eiga að mæta þeim útgjöldum sem ríkið verður fyrir …
Tekjurnar eiga að mæta þeim útgjöldum sem ríkið verður fyrir vegna skimana. Ljósmynd/Lögreglan

Þegar kostnaðarmat var gert fyrir skimun á landamærum var miðað við að 2.000 sýni væru tekin daglega í 100 daga. Heildarútgjöld fyrir þá skimun voru þá áætluð 2,5 milljarðar en gjaldið sem ferðamenn greiða fyrir sýnin á að skila tveimur milljörðum. Þetta kom fram í máli Páls Þór­halls­sonar, verk­efna­stjóra í for­sæt­is­ráðuneyt­inu, á upplýsingafundi almannavarna í dag. 

Því munar hálfum milljarði á útgjöldum og kostnaði en ástæðan fyrir því er að ekki var talið forsvaranlegt að leggja fjárfestingakostnað á ferðamenn en áætlað er að hluti af kostnaðinum fari í innviði og búnað sem mun væntanlega nýtast eftir að skimunartímabili lýkur, að sögn Páls. 

Kostnaðarmatið verður endurskoðað

Tekjurnar eiga að mæta þeim útgjöldum sem ríkið verður fyrir vegna skimana. Útgjöldin fela í sér laun starfsmanna í skimun á greiningu, kostnað við sýnatökubúnað, pinna og glös, flutning sýna, kostnað við tölvubúnað, breytingar á Keflavíkurflugvelli og fleira. 

Tekjurnar fara inn á reikning heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er þeim útdeilt þaðan. 

„Þess verður gætt að mæta kostnaði aðila með öðrum hætti ef tekjurnar duga ekki til,“ sagði Páll sem benti á að gert væri ráð fyrir þjóðhagslegum ávinningi af skimun á landamærum. 

Kostnaðarmatið verður líklega endurskoðað fljótlega enda er það óvissu háð, að sögn Páls. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert