Umferðarslys við Stóru-Laxá

Einn var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar
Einn var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar mbl.is/Árni Sæberg

Einn var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir þriggja bíla árekstur við Stóru-Laxá hjá Flúðum í dag. Útkall barst rétt eftir hálffjögur.

Vísir greindi fyrst frá málinu.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar voru ökumenn bílanna þriggja einir á ferð, en tveir ökumannanna hlutu minniháttar áverka. Þyrla landhelgisgæslunnar lenti við Borgarspítalann með þann þriðja klukkan 16:28.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var á flugi í námunda við svæðið og gat því brugðist hratt við, að sögn Landhelgisgæslunnar.

Fréttin verður uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert