Faldi kannabis undir dýnu

AFP

Tvö kannabismál komu á borð lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í bílskúr, þar sem farið var í húsleit að fenginni heimild, fundust kannabisefni undir dýnu. Jafnframt mikið magn af smelluláspokum, vog og önnur tól til fíkniefnanotkunnar.

Í öðrum bílskúr var húsráðandi fyrir og framvísaði hann krukku með kannabisefnum sem geymd var í skúrnum að því er segir í tilkynningu frá embættinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert