Mælast til sniðgöngu á hlutafjárútboði Icelandair

mbl.is/Sigurður Bogi

„Stjórn VR, sem jafnframt á sæti í fulltrúaráði Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, beinir þeim tilmælum til þeirra stjórnarmanna sem VR skipar í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna að sniðganga eða greiða atkvæði gegn þátttöku í væntanlegu hlutafjárútboði Icelandair.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR sem er send út í kjölfar þess að Icelandair sagði upp öllum sínum flugfreyjum og flugþjónum.

„Fjölda félagsmanna VR, sem margir hverjir hafa starfað áratugum saman hjá félaginu, hefur verið sagt upp störfum á meðan félagið stundar félagsleg undirboð með úthýsingu starfa í löndum þar sem réttindi eru fótum troðin.“

Þá segir í tilkynningunni að stjórn VR geti ekki sætt sig við að „eftirlaunasjóðir launafólks séu notaðir til fjárfestinga í fyrirtækjum sem hvetja til félagslegra undirboða. Það stríðir gegn öllum þeim gildum sem verkalýðshreyfingin stendur fyrir.“

VR bendir á að lífeyrissjóðirnir hafi sett sér alþjóðleg siðferðisleg viðmið í fjárfestingastefnum sínum og beri að fylgja þeim eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert