Mótmælir aðgerðum Icelandair

Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar.
Logi Einarsson er formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/​Hari

Þingflokkur Samfylkingarinnar mótmælir harðlega uppsögnum Icelandair á flugfreyjum og flugþjónum og fordæmir slíkar aðferðir í kjaradeilum. Það er skylda samningsaðila að ná samningum sem báðir aðilar geta fellt sig við.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingflokknum.

Réttur stéttarfélaga til að gera kjarasamninga fyrir hönd sinna félagsmanna er ein undirstaða velferðarsamfélagsins. Þessu hefur verkalýðshreyfingin náð fram með áralangri baráttu og þær leikreglur ber að virða, segir enn fremur í yfirlýsingunni.

„Þingflokkurinn minnir á að Icelandair nýtur margvíslegrar fyrirgreiðslu af hálfu ríkisins og ríkisstjórnin hefur hér hlutverki að gegna. Höldum vöku okkar og stöndum öll vörð um réttindi launafólks í landinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert