Snorri Björns fyrstur íslenskra karla

Snorri var hæstánægður með árangurinn eins og hér má sjá.
Snorri var hæstánægður með árangurinn eins og hér má sjá. Ljósmynd/Laugavegur - Ultra marathon

Ljósmyndarinn Snorri Björnsson, sem þekktur er fyrir hlaðvarpsþættina The Snorri Björns Podcast Show, kom fyrstur íslenskra karla í mark í Laugavegshlaupinu í dag. Snorri hljóp á fjórum klukkustundum, 38 mínútum og 33 sekúndum. 

Eins og áður hefur verið greint frá sigraði Litháinn Vai­das Zla­bys í karlaflokki en hann hljóp á og fjórum klukkustundum, 17 mín­út­um og 30 sek­únd­ur. Rann­veig Odds­dótt­ir sigraði í kvenna­flokki og setti nýtt móts­met, 5 klukku­stund­ir og 37 sek­únd­ur. 

Hlaupaleiðin er 55 kíló­metr­ar en 530 kepp­end­ur lögðu af stað frá Land­manna­laug­um í morg­un.

Í hlaðvarpsþáttum Snorra fær hann gjarnan til sín hlaupara sem gefa öðrum góð ráð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert