Fundu ólögleg net við eftirlit

TF-GRÓ lendir á Akureyri.
TF-GRÓ lendir á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GRÓ var við fiskveiðieftirlit í gær. Gæslan sinnir almennu fiskveiðieftirliti auk þess að fylgjast með að banni við lagningu silungsneta á ákveðnum tímum sé framfylgt.

Í samtali við mbl.is segir Auðunn Kristinsson, verkefnastjóri hjá Landhelgisgæslunni, að til þess að sinna eftirlitinu þurfi að fljúga þyrlunni lágflugi en hún sást meðal annars á sveimi í Eyjafirði í gær. „Þetta er bara hluti af okkar hefðbundnu verkefnum,“ segir Auðunn.

Eftirlitið bar árangur því fyrir norðan, þó ekki í Eyjafirði, fundust ólögleg silungsnet sem gerð voru upptæk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert