Feðgar við stýrið

Feðgarnir á Dettifossi ferðbúnir.
Feðgarnir á Dettifossi ferðbúnir.

Hið nýja skip Eimskips, Dettifoss, fór í fyrstu ferð sína frá Íslandi til Evrópu á miðvikudagskvöldið.

Svo skemmtilega vill til að við stjórnvölinn eru feðgar, þeir Ríkharður Sverrisson skipstjóri og Ríkharður Björgvin Ríkharðsson yfirstýrimaður, að því er fram kemur í frétt í Morgunblaðinu í dag.

Er þetta í fyrsta sinn svo vitað sé sem feðgar gegna þessum hlutverkum í sömu siglingu hjá Eimskip. Að sjálfsögðu fóru þeir í viðhafnarklæðnað í tilefni dagsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert