Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14 í dag í Katrínartúni 2.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19-faraldursins hér á landi, ásamt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjóni hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Gestur fundarins verður Agnes Agnarsdóttir, fagstjóri sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.