Stjórn Landssambands hestamannafélaga hefur tekið þá ákvörðun að aflýsa Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum sem halda átti 12. til 16. ágúst 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu.
„Við þessar fordæmalausu aðstæður sem COVID-19 veiran hefur kallað yfir heimsbyggðina hefur Landssamband hestamannafélaga haft samfélagslega ábyrgð í forgrunni við allar ákvarðanatökur sem við höfum staðið frammi fyrir og er svo einnig núna.
Við teljum ekki forsvaranlegt í ljósi aðstæðna að Íslandsmótið 2020 verið haldið og höfum því ákveðið, í samráði við Hestamannafélagið Geysi, að aflýsa því,“ segir í tilkynningunni.