Byggðarráð sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á N1 að tilkynna mengunartjón sem varð þegar bensíntankur á Hofsósi lak með þeim hætti sem vera ber. Þetta kemur fram í fundargerð byggðarráðs Skagafjarðar.
Fréttastofa RÚV greindi frá því í desember á síðasta ári að fimm manna fjölskylda hefði neyðst til að flytja úr húsi sínu við Suðurbraut 6 á Hofsósi vegna mikillar bensínlyktar eftir að tankur bensínstöðvar N1 við Suðurbraut 9 lak. Í kjölfarið bannaði Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra afnot af húsinu.
„Ljóst er að umfang mengunar frá bensíntanki N1 að Suðurbraut er mikið og hefur m.a. haft þau áhrif að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hefur bannað afnot af íbúðarhúsnæðinu að Suðurbraut 6 þar til fullnægjandi hreinsun hefur átt sér stað. Mengunin hefur auk þess haft áhrif á starfsemi fyrirtækja á svæðinu,“ segir í fundargerðinni.
Þar segir einnig að sveitarfélagið Skagafjörður hafi ríkra hagsmuna að gæta sem eigandi lóða og veitumannvirkja í nágrenni við bensínstöðina. Sveitarfélagið leggi því ríka áherslu á að N1 uppræti þá mengun sem „ljóst er að orðið hefur af völdum bensínleka úr tanki N1 við Suðurbraut 9 og komist alfarið fyrir mengunina hvar sem hana er að finna.“
Til grundvallar þeim aðgerðum þurfi að liggja ítarlegar rannsóknir á umfangi mengunarinnar og jarðlögum á svæðinu enda „grafalvarlegt mál að ræða þegar svo virðist sem mengunin leiti langt frá upptökum sínum.“
„Nú er orðið ljóst að N1 hefur ekki tilkynnt mengunartjónið til Umhverfisstofnunar með þeim hætti sem lög kveða skýrt á um og lítur byggðarráð það alvarlegum augum. Skorar byggðarráð á N1 að tilkynna mengunartjónið strax með þeim hætti sem vera ber,“ segir jafnframt í fundargerðinni.
Byggðarráð hefur falið sveitarstjóra Skagafjarðar að fylgja málinu eftir gagnvart N1 og Umhverfisstofnun.