Samherji birtir stiklu fyrir eigin þátt

Þorsteinn Már Baldvinsson, annar forstjóra Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, annar forstjóra Samherja. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson

Útgerðarfélagið Samherji birti í morgun stiklu á YouTube-rás sinni þar sem gefið er í skyn að fyrirtækið muni á morgun birta eigin þátt um ásakanir sem hafa verið uppi gegn félaginu.

Stiklan virðist taka til gjaldeyrishluta þeirra ásakana sem settar hafa verið fram gegn félaginu, en það byrjaði með rannsókn og húsleit á vegum Seðlabanka Íslands. Málinu lauk í lok árs 2018 með því að  Hæstaréttur felldi niður 15 milljón króna sekt sem Seðlabankinn hafði lagt á og héraðsdómur staðfest.

Kveikur fjallaði svo í vetur, eftir samstarf með Stundinni, um meintar spillingu Samherja í Namibíu, en þar var félagið bendlað við mút­ur í Namib­íu til handa stjórn­mála­mönn­um og tengd­um aðilum til að fá hesta­mak­ríl­kvóta þar í landi á und­ir­verði. Þá eru skatta­mál fyr­ir­tæk­is­ins til rann­sókn­ar bæði hér á landi og í Namib­íu.

Í fyrrnefndum þætti var fréttamaðurinn Helgi Seljan einn umsjónarmanna, en í stiklunni sem nú er birt kemur fram hljóðupptaka sem sögð er vera leynilega upptaka af honum ræða við ónefndan aðila. Af samhengi stiklunnar virðist upptakan þó tengjast Seðlabankamálinu frekar en Namibíumálinu, þó það komi ekki skýrt fram.

HS: Þú mátt, þú mátt ekki segja þeim frá þessu

ÓA: Nei nei nei nei

HS: Ég verð að treysta því

ÓA: Já já já já

Birtist svo myndskeið sem sýnir húsleit yfirvalda hjá Samherja 2012 og því næst aftur skipt yfir í fyrrnefnda upptöku af Helga og ónefnda aðilanum:

HS: Ég held að það hafi verið þannig sem ég gerði það.

ÓA: Af því að ég gat ekki fengið neinn til að staðfesta fyrir mér.

Ekki kemur þó fram frekara samhengi í því samtali sem Helgi á við þann aðila.

Næst bregður fyrir stuttu skoti af Jóni Óttari Ólafssyni, afbrotafræðingi og fyrrverandi rannsóknarlögreglumanni, en hann hefur meðal annars unnið fyrir Samherja í tengslum við starfsemina í Namibíu. Spyr hann hvaðan ásakanirnar komi og hvernig þetta geti átt sér stað.

Í lok stiklunnar er fólk svo hvatt til þess að fylgjast með á morgun.

Uppfært: Ekki hefur enn náðst í forsvarsmenn Samherja og jafnframt vildi Helgi Seljan ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert