María Fjóla ráðin forstjóri Hrafnistu

María Fjóla Harðardóttir.
María Fjóla Harðardóttir. Ljósmynd/Aðsend

María Fjóla Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs Hrafnistu, var í dag ráðin forstjóri Hrafnistuheimilanna frá og með 1. september.

María hefur starfað hjá Hrafnistu frá árinu 2015 sem framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs, að því er fram kemur í tilkynningu.

Hún hefur enn fremur sinnt starfi forstjóra Hrafnistu undanfarna mánuði, ásamt Sigurði Garðarssyni, framkvæmdastjóra Sjómannadagsráðs, og er hún jafnframt fyrsta konan í því starfi. Sigurður Garðarsson mun áfram gegna starfi framkvæmdastjóra Sjómannadagsráðs.

Hrafnista rekur í dag átta hjúkrunarheimili í fimm sveitarfélögum og er Hrafnista önnur stærsta heilbrigðisstofnun landsins þegar litið er til fjölda íbúa, þjónustuþega og starfsfólks.

Hrafnista er eitt dótturfélaga Sjómannadagsráðs, sem í sitja fulltrúar sem tilnefndir eru af stéttarfélögum sjómanna á höfuðborgarsvæðinu. María Fjóla er sjötti forstjóri Hrafnistu sem tók til starfa á sjómannadaginn 2. júní 1957.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert