Einn metri í skólum og snertiíþróttir leyfðar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í framhalds- og háskólum verður heimilt að hafa 1 metra á milli einstaklinga án þess að andlitsgrímur séu notaðar og þrátt fyrir meginregluna um 2 metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Að öðru leyti gildir áfram meginreglan um 2 metra nálægðarmörk.

Þetta kemur fram í tilkynningu vegna auglýsingar heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi 14. ágúst.

Í framhalds- og háskólum skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snerfifleti minnst einu sinni á dag og áhersla skal lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Í búningsklefum og á öðrum svæðum utan íþróttakeppna og -æfinga skal virða 2 metra reglu. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða 2 metra regluna. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands skal setja sérsamböndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, meðal annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna.

Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja 2 metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu, og við aðstæður þar sem skylt er að nota andlitsgrímur líkt og skilgreint er í auglýsingunni skal aðeins nota grímur sem uppfylla kröfur evrópsku staðlasamtakanna (CEN).

Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki. Eins og fram kemur í auglýsingu ráðherra er rík áhersla lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir og almennar smitvarnir með tíðum og reglubundnum þrifum þar sem fólk kemur saman.

Hjúkrunarheimilum, öðrum heilbrigðisstofnunum og sambærilegum stofnunum er gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilum og stofnunum.

Börn fædd árið 2005 eða síðar eru áfram undanskilin ákvæðum 3. gr. auglýsingarinnar sem snúa að fjöldatakmörkun og 4. gr. um almenna nálægðartakmörkun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert