Afhentu sex milljónir vegna Vatnajökulsgöngu

Frá afhendingu styrkjanna í dag.
Frá afhendingu styrkjanna í dag. Ljósmynd/Silla Páls

„Sirrý Ágústsdóttir og Snjódrífurnar afhentu fulltrúum styrktarfélaganna Lífs og Krafts afrakstur söfnunar Lífskrafts samtals 6 milljónir króna á Kjarvalsstöðum í dag. Í byrjun sumars gengu þær 165 km leið yfir Vatnajökul og söfnuðu áheitum fyrir félögin Kraft, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, og Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans“, þetta kemur fram í tilkynningu frá Snjódrífunum.

Sirrý Ágústsdóttir upphafskona átaksins greindist með leg­hálskrabba­mein árið 2010 og aft­ur árið 2015.

„Í síðara skiptið var ljóst að krabbameinið var krónískt og töldu læknar að hún ætti eitt til þrjú ár eftir ólifað. Sirrý ákvað að fagna þessum tímamótum með því að ganga yfir Vatnajökul ásamt útivistarvinkonum sínum og á sama tíma að hvetja konur um land allt til að ganga og taka þátt í Lífskraftsgöngu í sinni heimabyggð. Markmiðið göngunni var jafnframt að minna á mikilvægi útivistar og sjálfseflingar í endurhæfingu eftir veikindi. Ennfremur stóð til að ganga á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk (Kvennadalshnjúk), með 100 konum en vegna Covid faraldursins þá var göngunni frestað til ársins 2021.“

Í tilkynningunni er haft eftir Ingirid Kuhlman, formanni Lífs að söfnunin hafi verið ómetanleg fyrir félagið. Félagið er bakhjarl kvennadeildar Landspítala. 

„Ég vil færa Snjódrífunum hugheilar þakkir fyrir þann stuðning og hlýhug sem þær hafa sýnt okkur. Það er sýn okkar hjá Líf að söfnunarféð fari í að útbúa margnota stofu á kvenlækningadeild sem mun nýtast sem hvíldarherbergi, fyrir konur í krabbameinsmeðferð sem þurfa að fara í einangrun en einnig fyrir t.d. deyjandi konur og aðstandendur þeirra. Söfnunarféð gerir okkur kleift að tryggja að konum og fjölskyldum þeirra séu búnar bestu hugsanlegu aðstæður“.

Einstakur samhugur

Elín Sandra Skúladóttir, formaður Krafts segir söfnunina ómetanlega. 

„Við erum þeim einstaklega þakklát og þær hafa svo sannarlega sýnt að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Það var svo gaman að fylgjast með Snjódrífunum meðan þær þveruðu yfir jökulinn og einstakt að finna fyrir samhuginum í þjóðfélaginu öllu. Fjárhæð sem þessi kemur sér virkilega vel fyrir félagið og ekki hvað síst nú í ljósi aðstæðna í samfélaginu. Með þeirra hjálp og allra þeirra sem hétu á þær getum við hjálpað öðrum“.

Sirrý segir „bestu tilfinningu í heimi“ að fá að afhenda styrktarféð. 

„Við Snjódrífur erum gríðarlega stoltar. Þjóðin stóð með okkur og við fundum fyrir þeim krafti upp á jökli. Við erum jafnframt ótrúlega þakklátar fyrir bakhjarlana okkar í þessu verkefni, 66°Norður, Arctic Fish og Landsvirkjun, að gera okkur kleift að láta söfnunarféð renna óskert til félaganna.  Þetta er tímamót hjá Snjódrífum en við munum halda ótrauðar áfram til að ná settu markmiði. Næsta verkefni okkar er að ganga upp á hæsta tind landsins, Kvennadalshnjúk, í slagtogi ríflega 100 kvenna og klára þetta átak sem snýr að Krafti og Líf.“

Auk Sirrýjar skipa Snjódrífur leiðangurstjórarnir Vilborg Arna Gissurardóttir pól- og Everestfari og  Brynhildur Ólafsdóttir Landvættaþjálfari og fjallaleiðsögumaður; Anna Sigríður Arnardóttir, Birna Bragadóttir, Heiða (Nikita) Birgisdóttir, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Hulda Hjálmarsdóttir, Karen Kjartansdóttir, Soffía S. Sigurgeirsdóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert