Fordæmir uppsagnir á Landspítalanum

Stjórnendateymi í eldhúsi og uppvaski var sagt upp á föstudag …
Stjórnendateymi í eldhúsi og uppvaski var sagt upp á föstudag fyrir viku, alls átta manns. mbl.is/Jón Pétur

Aðalfundur Sameykis samþykkti á aðalfundi sínum í gær ályktun þar sem uppsagnir á Landspítalanum eru fordæmdar. Stjórnendateymi í eldhúsi og uppvaski var sagt upp föstudaginn sl., 11. september, alls átta manns.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sameyki stéttarfélagi í almannaþjónustu.

„Í þessum faraldri hafa starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar staðið í framlínunni þar sem mestur þunginn hefur verið. Landspítalinn hefur staðið í brjóstvörn aðgerða og allir starfsmenn og starfseiningar sýnt ótrúlega fórnfýsi og fagmennsku.

Undir þessu kringumstæðum sér Landspítalinn sóma sinn í því að sækja að stjórnendateymi sínu í eldhúsi spítalans, í matargerð og í uppþvotti, þeim tveimur starfseiningum sem sjá um að framleiða heilbrigt og næringarríkt fæði, og sóttvörn mataráhalda allra þeirra þúsunda sem njóta þjónustu eldhússins,“ segir meðal annars í ályktuninni.

Þar segir einnig að aðalfundur Sameykis stéttarfélags fordæmi þessa aðför að því fólki sem haldið hefur heilbrigðiskerfinu gangandi, á tímum þar sem nauðsyn þess að byggja á fagmennsku hefur aldrei verið meiri. Íslensk stjórnvöld hafi þá siðferðilegu skyldu að sýna gott fordæmi og standa í vegi fyrir vanhugsuðum og óásættanlegum brottrekstri trúfastra starfsmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert