Skipuð skrifstofustjóri á skrifstofu loftlagsmála

Halla Sigrún Sigurðardóttir.
Halla Sigrún Sigurðardóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að skipa Höllu Sigrúnu Sigurðardóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu loftlagsmála til næstu fimm ára.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Alls bárust 30 umsóknir um stöðuna sem var auglýst í júní á þessu ári. Hæfnisnefnd skilaði í kjölfarið greinargerð til ráðherra.

Nýtt skipurit umhverfis- og auðlindaráðuneytisins tók gildi 1. júní sl. sem hefur það markmið að efla starfsemi ráðuneytisins til að takast á við viðamikið hlutverk þess á sviði alþjóðamála og samþættingar umhverfismála, einkum loftslagsmála. 

Skrifstofa loftslagsmála  og skrifstofa alþjóðamála og samþættingar voru settar á fót og hefur skrifstofa loftslagsmála meðal annars það hlutverk að sjá um framkvæmd og eftirfylgni verkefna stjórnvalda á sviði loftslagsmála.

Halla Sigrún starfar sem framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og þróunarsviðs Samgöngustofu og er staðgengill forstjóra. Hún var áður framkvæmdastjóri samhæfingasviðs Samgöngustofu 2013-2019 og settur forstjóri sumarið 2019.

Á undan því var hún var framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Flugmálastjórnar Íslands 2007 til 2013, aðstoðarmaður flugmálastjóra 2004 til 2006 og starfaði hjá BHM sem verkefnastjóri, upplýsingafulltrúi og kjararáðgjafi árin 1999 til 2002.

Halla Sigrún er með MBA-gráðu frá Strathclyde Graduate School of Business í Glasgow í Skotlandi og BA-gráðu í atvinnulífs og mannfræði frá Háskóla Íslands. Þá er hún með með diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

Eiginmaður Höllu Sigrúnar er Birkir Marteinsson og eiga þau tvo syni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert