200 starfsmenn Landspítala í sóttkví

Hver sýnataka tók um 1-2 mínútur.
Hver sýnataka tók um 1-2 mínútur. Ljósmynd/Landspítali

Talsverður fjöldi starfsfólks Landspítalans þurfti að fara í skimun fyrir COVID-19 í dag eftir að smit greindust á starfsstöðvum spítalans. Skimunaraðstaða var sett upp í skúr við Landspítalann í Fossvogi og tók það um 1-2 mínútur að taka sýni úr hverjum starfsmanni.

Um 200 starfsmenn Landspítalans eru í úrvinnslusóttkví á meðan þeir bíða eftir niðurstöðum. Þrátt fyrir það er ekki gert ráð fyrir neinni skerðingu á þjónustu spítalans gagnvart sjúklingum að svo stöddu. Unnið er að endurskipulagningu þjónustuþátta til að tryggja samfellda og örugga þjónustu.

Að minnsta kosti átta starfsmenn hafa greinst með COVID-19, annars vegar á skrifstofum í Skaftahlíð og hins vegar hjá skurðlækningaþjónustu spítalans. Viðbúnaðarstig hefur verið hækkað af óvissustigi á hættustig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert