Allt að ellefu stiga hiti í dag

Hiti verður á bilinu 4 til 11 stig í dag.
Hiti verður á bilinu 4 til 11 stig í dag. Kort/mbl.is

Spáð er suðaustan 8 til 15 metrum á sekúndu austanlands í dag en annars verður mun hægari vindur.

Rigning verður með köflum en úrkomulítið vestanlands. Hiti verður á bilinu 4 til 11 stig, hlýjast eystra. Vestlægari átt verður í kvöld og rofar víða til en kólnar heldur.

Norðlæg átt verður á morgun, 3-10 m/s og víða dálitlar skúrir eða slydduél, en þurrt að kalla suðvestantil. Hiti verður á bilinu 0 til 10 stig, hlýjast syðst.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert