Beinn vegur kemur í stað beygju

Í fyrsta áfanga verksins verður Borgartúnið framlengt og því þurfa …
Í fyrsta áfanga verksins verður Borgartúnið framlengt og því þurfa ökumenn ekki að taka aukakrók til að komast inn á Snorrabrautina. mbl.is/sisi

Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hefur gefið út framkvæmdaleyfi vegna nýrrar gatnatengingar á milli Borgartúns og Snorrabrautar ásamt aðlögun að núverandi gatnakerfi. Áður hafði borgarráð samþykkt að láta bjóða verkið út. Kostnaðaráætlun er 40 milljónir króna.

Um er að ræða 1. áfanga framkvæmdar við gerð nýrra gatnamóta Snorrabrautar og Borgartúns. Í síðari áfanga verður svo opnað í gegnum miðeyju Snorrabrautar og sett upp umferðarljós. Framkvæmdir eru í samræmi við deiliskipulag fyrir Hlemm og nágrenni sem samþykkt var í borgarráði hinn 19. mars 2020.

Aukakrókur verður úr sögunni

Í dag eru aðstæður þannig að komi bílar akandi vestur Borgartún geta þeir ekki ekið beint inn á Snorrabraut. Þurfa þeir að beygja til vinstri fram hjá kínverska sendiráðinu í átt að Lögreglustöðinni og síðan taka hægribeygju inn á Snorrabraut. Þessi aukakrókur verður úr sögunni þegar nýju gatnamótin, svokölluð T-gatnamót, verða komin í gagnið.

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, var ekki sátt við málalyktir og bókaði í borgarráði að það væri hreint með ólíkindum að borgarstjóri og meirihlutinn ætluðu að fara í þessar gerræðislegu framkvæmdir þvert á vilja lögreglunnar. „Í upphafi þessa máls lagði lögreglan inn ítarlega umsögn í þá veru að viðbragðsflýti frá lögreglustöðinni við Hverfisgötu yrði stefnt í hættu þegar framkvæmdirnar verða að fullu komnar til framkvæmda. Öryggissjónarmið sem snúa að viðbragðsflýti lögreglu, sjúkrabíla og slökkviliðs sem snúa að vernd borgaranna hafa aldrei truflað meirihlutann. Minnt er á að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er formaður stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og ber því ábyrgð á almannavörnum á höfuðborgarsvæðinu. Almannavarnir eru samnefnari viðbragða og úrræða þegar hættu- og neyðarástand skapast á höfuðborgarsvæðinu. Þrengingarstefna meirihlutans trompar almannavarnir í borginni,“ bókaði Vigdís.

Borgarfulltrúar meirihlutans bentu hins vegar á að verkefnið væri í samræmi við deiliskipulag fyrir Hlemm og nágrenni sem borgarráð samþykkti í mars á þessu ári. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bókuðu að mikilvægt væri að vinna í góðu samráði við lögregluna varðandi aðgengi og akstursleiðir við Hlemm.

Á árunum 2013-14 var unnið að endurgerð Borgartúns, milli Snorrabrautar og Sóltúns. Gróðursvæði var komið fyrir milli götunnar og hjólastíga og skipt um ljósastaura í götunni. Fjórum miðeyjum var bætt við til að auðvelda gangandi vegfarendum að þvera götuna. Þá var bílastæðum fækkað verulega.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert