293 misst vinnuna í átta uppsögnum

mbl.is/Hari

293 misstu vinnuna í átta hópuppsögnum í september. Sjö uppsagnanna voru hjá ferðaþjónustufyrirtækjum. Vinnumálastofnun spáir auknu atvinnuleysi, sem gæti orðið um 12%. Í september er áætlað að atvinnuleysi hafi verið tæp 10%, 8,7% í almennu atvinnuleysi og 0,9% á hlutabótaleið. Það eru þó óstaðfestar tölur.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að uppsagnirnar hafi ekki komið á óvart. Aðeins færri misstu vinnuna í hópuppsögnum í ágúst en aðeins fleiri í júlí. Spurð hvort líklegt sé að þróunin verði áfram með þeim hætti að fleiri missi vinnuna segir Unnur: 

„Okkar spár gera ráð fyrir því að atvinnuleysi muni stíga upp fram að áramótum alla vega, að það verði aukið atvinnuleysi með hverjum mánuðinum sem líður.“ 

Gæti farið upp í 25 þúsund

Unnur segir að atvinnuleysi gæti farið upp í 12% fyrir áramót. Spár Vinnumálastofnunar spáðu áður fyrir um að 21.000 myndu vera atvinnulausir fyrir lok árs en nú segir Unnur að sú tala gæti farið upp í 25.000. Fólk sem er á hlutabótum er þó inni í þessum tölum og getur það skekkt myndina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert