Fimm skipverjar mögulega smitaðir

Togarinn er væntanlegur í kvöld og liggur fyrir grunur um …
Togarinn er væntanlegur í kvöld og liggur fyrir grunur um smit. mbl.is/Sigurður Bogi

Fimm skipverjar á togara sem von er á til Seyðisfjarðar í kvöld hafa fundið til einkenna kórónuveirusmits og undirbýr starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Austurlands móttöku skipverjanna þar sem tekin verða sýni auk þess sem þörf á sóttkví og einangrun er metin.

Niðurstaða sýnatöku ætti að liggja fyrir seinnipart dags á morgun en tvö virk smit eru nú þegar skráð hjá þeim sem eiga lögheimili á Austurlandi, eftir að eitt smit greindist í gær. Sá smitaði var ekki staddur á Austurlandi, af því er lögreglan á Austurlandi greinir frá á Facebook-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert