95% samdráttur meðal útlendinga

Íslendingar hafa verið duglegir að ferðast um landið og gista …
Íslendingar hafa verið duglegir að ferðast um landið og gista á hótelum í sumar og haust. Eins hafa þeir nýtt sér ýmiskonar afþreyingu, þar á meðal Giljaböðin skammt frá Húsafelli. Ljósmynd/Aðsend

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands, sem byggja á fyrstu skilum fyrir septembermánuð, má ætla að gistinætur á hótelum í september hafi verið um 80.000 þar af hafi íslenskar gistinætur verið um 62.000 og gistinætur útlendinga um 18.000.

Rúmanýting um 15%

Borið saman við 434.200 gistinætur í september 2019 má ætla að orðið hafi um það bil 82% samdráttur á fjölda gistinátta í september á milli ára. Samkvæmt þessu má ætla að gistinóttum Íslendinga hafi fjölgað um um það bil 65% frá sama mánuði í fyrra en gistinætur útlendinga hafi á sama tíma dregist saman um um það bil 95%.

Samkvæmt sömu áætlun var rúmanýting í september 2020 um 15% samanborið við 61,3% í sama mánuði í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert