46 lagst inn á sjúkrahús í þriðju bylgju

Mikið álag er á Covid-göngudeild Landspítalans.
Mikið álag er á Covid-göngudeild Landspítalans. Ljósmynd/Landspítali

46 einstaklingar á öllum aldri hafa þurft innlögn á Landspítalann vegna kórónuveirunnar í þriðju bylgju faraldursins hér á landi. Nú eru 23 inniliggjandi, þarf af tveir á gjörgæslu. 

Fram kemur í stöðuskýrslu almannavarnadeildar að töluvert álag sé hjá aðgerðarstjórn en ástandið sé þó í jafnvægi. 

50 greindust með veiruna innanlands í gær, þar af voru 33 í sóttkví. Þá greindust 5 smit við landamærin. 

Áfram er mikið álag á Covid-göngudeild Landspítalans, en veikindi sjúklinga eru sögð sambærileg því sem var í fyrstu bylgju faraldursins. 

Mikið álag er á Farsóttarhúsinu, en þar eru nú 86 gestir, meðal annars 65 sem eru í einangrun. 

Smitrakning gengur vel en mikið álag er á smitrakningarteyminu. Einstaka tilfelli eru flókin í rakningu eftir því sem segir í stöðuskýrslunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert