Smit um borð í Norrænu

Norræna er væntanleg til landsins á morgun.
Norræna er væntanleg til landsins á morgun. mbl.is/Sigurður Bogi

Von er á Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið. Að sögn lögreglunnar á Austurlandi kom í ljós, skömmu eftir brottför ferjunnar frá Hirtshals í Danmörku á laugardag, að tveir í áhöfn er komu þar um borð voru smitaðir.

„Strax voru gerðar ráðstafanir varðandi einangrun þeirra auk þess sem ellefu áhafnarmeðlimir aðrir þurftu í sóttkví. Allir fóru þeir svo frá borði við komu til Færeyja þar sem sóttkví hélt áfram og tvímenningarnir fengu aðhlynningu. Þeir eru ekki með einkenni smits og ekki talin ástæða til að ætla að farþegar hafi smitast,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Þá segir að sýni verði tekin af öllum farþegum samkvæmt venju við komu til Seyðisfjarðar sem svo verði í sóttkví þar til niðurstaða liggur fyrir í seinni skimun að fimm til sex dögum liðnum. Ennfremur segir að öllu verklagi verði fylgt hér á landi samkvæmt venju en sérstök aðgát viðhöfð engu að síður í ljósi þessa.

Áhöfn Norrænu sem hélt áfram til Íslands var skimuð í Færeyjum og liggur niðurstaða fyrir. Enginn greindist með smit.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert