Sinntu 111 sjúkraflutningum á einum sólarhring

Ljósmynd/Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti 111 sjúkraflutningum á síðasta sólarhring. Þar af voru 22 forgangsflutningar og 10 vegna Covid-19.

Slökkvibílar voru kallaðir út í tvígang. Í annað skiptið var um að ræða smá eld í rusli á víðavangi en í hitt skiptið eld í bíl á bílastæði við Smáralind, hvor tveggja eldurinn var slökktur fljótt og örugglega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert