Tveir bekkir í Öldutúnsskóla í sóttkví

Nemendur í 2. og 3. bekk í Öldutúnsskóla eru komnir …
Nemendur í 2. og 3. bekk í Öldutúnsskóla eru komnir í sóttkví. mbl.is/Gúna

Tveir bekkir í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði hafa verið sendir í sóttkví vegna smits í skólanum. Nemendur í 2. og 3. bekk voru sendir í sóttkví á miðvikudag og er gert að sæta sóttkví þangað til 2. desember að beiðni smitrakningarteymis almannavarna og sóttvarnalæknis.

Mjög fjölgaði í sóttkví á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt covid.is í gær og er þetta sennilega ein af skýringunum þar á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert