Ungum börnum almennt ekki boðin bólusetning

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Líklega verður fleiri en ein tegund bóluefna við Covid-19 notuð hér á landi. Gera má ráð fyrir því að bóluefnin kunni að henta ólíkum hópum með mismunandi hætti. Það kann að hafa áhrif á forgangsröðun en nú hefur heilbrigðisráðherra staðfest reglugerð um forgangsröðun við bólusetningu vegna Covid-19.

Í tilkynningunni kemur einnig fram að ekki sé gert ráð fyrir í reglugerðinni að börnum fæddum 2006 og síðar verði boðin bólusetning gegn Covid-19 nema þau hafi undirliggjandi langvinna sjúkdóma og séu í sérstökum áhættuhópi.

„Sóttvarnalæknir ber ábyrgð á skipulagningu og samræmingu bólusetningar, svo sem hvaða bóluefni er notað og fyrir hvaða hópa og er einnig heimilt að víkja frá forgangsröðun reglugerðarinnar ef nauðsyn ber til,“ segir í tilkynningu. 

Tilgangur umræddrar reglugerðar er að ákveða forgangsröðunina „á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og með eins miklum fyrirsjáanleika og mögulegt er. Við smíði reglugerðarinnar var horft til leiðbeininga Alþjóðaheilbrigðis­málastofnunarinnar um forgangsröðun við bólusetningu vegna COVID-19 og sjónarmiða sem fram hafa komið í sambærilegri vinnu hjá nágrannaþjóðum,“ segir í tilkynningunni. 

Heilbrigðisstarfsmenn númer eitt

Sérstök áhersla verður lögð á að bólusetja fyrst þá einstaklinga sem eru í framlínunni í baráttunni við sjúkdóminn.

„Þetta á við um heilbrigðisstarfsfólk og annað starfsfólk sem starfar á bráðamóttökum og gjörgæsludeildum sjúkrahúsa, á COVID-19 göngudeild og legudeildum fyrir sjúklinga sem smitast hafa af COVID-19, heilbrigðisstarfsmenn sem framkvæmda sýnatökur vegna gruns um COVID-19 og starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimila. Bólusetning einstaklinga sem dvelja á hjúkrunar- og dvalarheimilum og öldrunardeildum sjúkrahúsa verður einnig í miklum forgangi.“

Reglugerðin skilgreinir tíu forgangshópa. Í mestum forgangi eru tiltölulega fámennir hópar en áætlað er að að í fyrstu fimm forgangshópunum séu rúmlega 20.000 einstaklingar.

„Í sjötta hópnum fjölgar hins vegar umtalsvert því þar er forgangsraðað þeim sem eru 60 ára og eldri. Í sjöunda hópnum eru einstaklingar með undirliggjandi langvinna sjúkdóma, í áttunda hópnum starfsfólk leik- grunn- og framhaldsskóla og tiltekið starfsfólk félags- og velferðarþjónustu, í níunda hópnum einstaklingar sem eru í viðkvæmri stöðu vegna félagslegra- og efnahagslegra aðstæðna og loks eru í tíunda hópnum allir aðrir sem óska bólusetningar, eftir því sem sóttvarnalæknir ákveður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert