Þyrlan orðin klár í útkall

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GRO.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF GRO. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRO, er orðin útkallshæf á ný. Flugvirkjar Landhelgisgæslunnar hafa unnið að skoðun vélarinnar um helgina og lauk viðhaldsvinnu nú á níunda tímanum. Þetta segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við mbl.is.

Þyrlan hefur verið ónothæf síðustu daga vegna verkfalls flugvirkja Landhelgisgæslunnar. Verkfallinu lauk á föstudag þegar lög voru sett á verkfallið.

Í samtali við mbl.is í gær sagði Ásgeir að TF-EIR, önnur þyrla Gæslunnar, yrði sennilega útkallsfær eftir þrjár vikur en hún var í viðhaldi þegar verkfallið brast á í byrjun mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert