Sjóvá styrkir Rauða krossinn um 15 milljónir

Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða …
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, og Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

Sjóvá hefur ákveðið að styrkja neyðarvarnir Rauða krossins um 15 milljónir króna. Framlag Sjóvár verður nýtt til að þjálfa viðbragðshópa félagsins í sálrænum stuðningi og til kaupa á neyðarbúnaði, sem gerir sjálfboðaliðum félagsins um allt land kleift að aðstoða fólk án tafar í kjölfar alvarlegra atburða.

„Rauði krossinn býr yfir þéttu neti sjálfboðaliða víðs vegar um landið sem bregst við fjölda alvarlegra atburða, svo sem náttúruhamförum, samgönguslysum, húsbrunum og vinnuslysum. Sjálfboðaliðar og starfsfólk búa yfir mismunandi sérþekkingu, m.a. í stjórnun aðgerða, uppsetningu fjöldahjálparstöðva og í að veita sálrænan stuðning og skyndihjálp þegar mikið liggur við. Þörfin fyrir þessar neyðarvarnir Rauða krossins hefur aukist gríðarlega á undanförnum árum, s.s. í tengslum við veðurofsa og náttúruhamfarir.

Við erum afskaplega þakklát fyrir þetta rausnarlega framlag. Stuðningur Sjóvá mun efla viðbúnað við hvers kyns krísum og hamförum, en við leggjum sérstaka áherslu á viðbúnað í smærri byggðum víðs vegar um landið og að fólk sé búið undir hamfarir, geti brugðist við þeim og eflst í kjölfar þeirra“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, í fréttatilkynningu.

„Það er okkur mikil ánægja að geta stutt við þetta mikilvæga starf Rauða krossins með þessum hætti. Við vitum að sú aðstoð sem Rauði krossinn veitir á vettvangi skiptir gríðarlegu máli og þetta málefni rímar afar vel við hlutverk okkar hjá Sjóvá og áherslur í styrktarmálum og þau heimsmarkmið sem við höfum valið okkur að vinna að“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert