Áfram hættustig á Siglufirði

Siglufjörður.
Siglufjörður.

Áfram er hættustig Veðurstofu Íslands á Siglufirði vegna snjóflóðahættu þá heldur rýming í húsum sömuleiðis áfram. Spáð er snjókomu og vindi næstu daga á Norðurlandi, en í dag féll snjóflóð í Héðinsfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra.

„Af þessum sökum verður áfram í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og hættustig á Siglufirði með rýmingum. Óvissustig er á Siglufjarðarvegi vegna snjóflóðahættu.  Íbúar sem rýmdu hús í gær fá að fara heim undir kvöld til þess að sækja hluti og huga að eigum sínum undir eftirliti lögreglu en fá ekki að dvelja þar,“ segir í tilkynningunni. 

Opnað var fyrir Siglufjarðarveg og veginn um Ólafsfjarðarmúla í dag. Honum verður þó lokað á ný klukkan 20 í kvöld vegna hættu á snjóflóðum. Búast má við truflunum á samgöngum á meðan þetta ástand varir og er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með tilkynningum Vegagerðarinnar. 

Varðskip Landhelgisgæslunnar, Týr, er úti fyrir Eyjafirði og verður til taks á meðan hættuástand varir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert