Nyt kúnna jókst í nýja fjósinu

Fjósið er nýtt og glæsilegt róbótafjós. Það er þó ekki …
Fjósið er nýtt og glæsilegt róbótafjós. Það er þó ekki nýtt að fullu vegna þess að ekki fæst aukinn kvóti.

„Við erum með nýlegt fjós. Framleiðslan jókst hratt eftir að við fluttum í það. Þegar aðstaðan batnar verða kýrnar heilbrigðari,“ segir Guðrún Marinósdóttir, bóndi á Búrfelli í Svarfaðardal. Kúabú þeirra hjóna, hennar og Gunnars Þórs Þórissonar, var með mestu meðalafurðir allra kúabúa landsins á síðasta ári.

Afurðir búsins voru 8.579 kg eftir hverja árskú á árinu 2020. Hefur búið tekið mikið stökk í framleiðslu síðustu árin, með tilkomu nýs fjóss með mjaltaþjóni. Fjósið var tekið í notkun í mars 2018, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Til samanburðar má geta þess að meðalafurðir búsins voru 7.977 kg á árinu 2019 og var búið þá í 17. sæti yfir afurðahæstu búin og á árinu 2018 var framleiðslan 7.492 kg og var búið þá í 41. sæti. Ef litið er til ársins áður en fjósið var tekið í notkun sést að meðalafurðir á Búrfelli voru 6.927 kg mjólkur og búið í 102. sæti yfir kúabúin. Stökkið er því mikið enda hafa meðalafurðir á hverja árskú aukist um 1.650 kg á þessum tíma.

„Við erum kvótalítil og maður getur því leyft sér að taka til í fjósi. Þá fara þeir gripir sem skila minnstu. Það fóru nokkrir þannig í sumar,“ segir Guðrún einnig spurð um frekari skýringar á góðum árangri í framleiðslunni. Kýrnar eru þá sendar í sláturhús fyrr en annars hefði orðið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert