Nichole nýr forstöðumaður Fjölmenningarseturs

Nichole Leigh Mosty tekur við sem forstöðumaður Fjölmenningarseturs.
Nichole Leigh Mosty tekur við sem forstöðumaður Fjölmenningarseturs. mbl.is/Golli

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur skipað Nichole Leigh Mosty í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins. Nichole er skipuð til fimm ára og tekur til starfa 1. mars næstkomandi.

Nichole var alþingismaður fyrir Bjarta framtíð á árunum 2016-2017 en hefur verið verkefnastjóri hjá þjónustumiðstöð Breiðholts frá árinu 2018 til dagsins í dag. Að auki hefur Nichole verið formaður Hverfisráðs Breiðholts frá 2014 til 2018.

Nichole er með B.ed.-gráðu í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og M.Ed. í náms- og kennslufræði frá Háskóla Íslands. Nichole var leiðbeinandi við Leikskólann Heiðarborg frá 2000-2003 en tók svo við starfi verkefnastjóra á leikskólanum Múlaborg árið 2004 þar sem hún vann með fjölbreyttum barna- og samstarfshópi með áherslu á samstarf og teymisvinnu í skólastarfi. Árið 2008 tók hún við starfi verkefnastjóra með umsjón yfir fjölmenningarstefnu leikskólans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert