Ekið á gangandi vegfaranda á Akureyri

Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. mbl.is/Þorgeir

Umferðarslys varð um klukkan 13 þegar ekið var á gangandi vegfaranda á Glerárgötu á Akureyri. Viðkomandi var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. 

Fram kemur í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra að unnið sé að rannsókn málsins. Því var Glerárgötu milli Þórunnarstrætis og Gránufélagsgötu lokað fyrir umferð í báðar áttir. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á Akureyri er ekki talið að viðkomandi sé alvarlega slasaður. 

Umferðarslys var nú um kl. 13 á Glerárgötu við Grænugötu en þar var ekið á gangandi vegfaranda og var hann fluttur á...

Posted by Lögreglan á Norðurlandi eystra on Föstudagur, 12. febrúar 2021
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert