Krapaflóð lokar hringveginum

Frá vettvangi þar sem lögregla og vegagerð eru að störfum.
Frá vettvangi þar sem lögregla og vegagerð eru að störfum. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Krapaflóð féll á hringveginn í sunnanverðum Fáskrúðsfirði fyrir skömmu og lokar það veginum. 

Þetta er annað flóðið sem fallið hefur á vegi á Austfjörðum í dag, að því er fréttaritari mbl.is hefur eftir lögreglu á svæðinu. Hitt flóðið féll í Reyðarfirði síðdegis í dag.

Vegagerðin vinnur að því að opna veginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert