„Brotaviljinn er oft ansi einbeittur“

Frá sýnatöku í Leifsstöð.
Frá sýnatöku í Leifsstöð. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Eftirlit með fólki sem sækir ættingja og vini á Keflavíkurflugvöll hefur verið aukið og verið er að leita leiða til að koma í veg fyrir að fólk keyri Reykjanesbrautina á einkabílnum.

Jón Pét­ur Jóns­son, yf­ir­lög­regluþjónn og sviðsstjóri landa­mæra­sviðs embætt­is rík­is­lög­reglu­stjóra, benti í síðustu viku á 90 til­vik þar sem verið var að sækja ein­stak­linga sem voru að koma er­lend­is frá á Kefla­vík­ur­flug­velli fyrstu helgina í febrúar.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn sagði til skoðunar hvort flugrútan geti farið af stað á nýjan leik. 

„Við erum vör við það með þessu aukna eftirliti að fólk er til dæmis að taka leigubíl niður í bæ í Keflavík og er sótt þar. Brotaviljinn er ansi einbeittur í mörgum dæmum og það er erfitt að bregðast við því,“ sagði Víðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert