Vesturlandsvegur opinn á ný eftir árekstur

Vesturlandsvegur.
Vesturlandsvegur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lokið við að hreinsa upp vettvang umferðarslyss sem varð á Vesturlandsvegi við Kjalarnes fyrr í dag. Þá hafa bílarnir tveir sem skullu saman verið fluttir af vettvangi og búið er að opna fyrir umferð um veginn. Þetta staðfestir varðstjóri hjá slökkviliðinu í samtali við mbl.is.

Slysið varð fyrir hádegi, en um harðan árekstur var að ræða. Einn var í hvorum bíl og var annar þeirra fluttur á slysadeild töluvert slasaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert