Hættustig nú einnig í gildi í Árnessýslu

Öflugir skjálftar hafa fundist á Suðvesturlandi í dag og víðar. …
Öflugir skjálftar hafa fundist á Suðvesturlandi í dag og víðar. Hér sjást ummerki um grjóthrun í námunda við Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hættustig almannavarna vegna jarðskjálftahrinunnar í dag nær nú einnig til Árnessýslu, en greint var frá því fyrr í dag að hættustigi hafi verið lýst yfir á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesskaga. 

Ákvörðun er tekin þar sem óstöðuleikinn nær yfir stórt svæði en jarðskjálftarnir í morgun hafa verið á milli Kleifarvatns og Grindavíkurvegar. Engir skjálftar hafa fundist milli Kleifarvatns og Bláfjalla á þessu ári en í sögunni hafa þar orðið skjálftar 6,5 að stærð,“ segir í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 

Einnig segir að ef skjálftavirkni færist austar geti áhrifasvæði stórs skjálfta náð um allan Reykjanesskaga, norður  í Hvalfjarðarsveit, kringum Þingvelli og upp að Þjórsá. Þar eru útivistarsvæði og biðla almannavarnir til fólks að fara varlega í bröttum hlíðum og þar sem grjóthrun getur orðið. 

Enn sem áður beina almannavarnir eftirfarandi tilmælum til þeirra sem búa á skjálftasvæðum:

  • Mikilvægt er að halda ró sinni.
  • Húsgögn: Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Festið létta skrautmuni.
  • Lausir munir og skrautmunir: Stillið þungum munum ekki ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega þannig að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta.
  • Kynditæki og ofnar: Kynnið ykkur staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum.
  • Skápahurðir: Geymið þungan borðbúnað í neðri skápum / skúffum og setjið öryggislæsingar / barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim.
  • Svefnstaðir: Fyrirbyggið að skápar, málverk, brothættir og þungir munir geti fallið á svefnstaði. Varist að hafa rúm við stóra glugga og hlaðna milliveggi.
  • Rúður: Tryggið að glerbrot fari ekki yfir svefnstaði og íverustaði fólks. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum.
  • Útvarp og tilkynningar: Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
  • Símar: Hafa ber í huga að farsímar duga skammt ef rafmagn dettur út í lengri tíma. Þá getur verið gott að eiga hleðslutæki til að hafa í bifreið eða hleðslubanka til að hlaða farsíma. Sendu SMS til þinna nánustu í stað þess að hringja (sérstaklega eftir stóran jarðskjálfta) til að minnka álag á símkerfi í hamförum.

Tilkynningu almannavarna í heild sinni má finna hér og frekari upplýsingar um skjálftavarnir má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert