Rannsókn á bílnum stendur enn yfir

Bíllinn hafnaði í sjónum í Skötufirði.
Bíllinn hafnaði í sjónum í Skötufirði. Graf/mbl.is

Niðurstöður eru enn ekki komnar úr rannsókn á bílnum sem hafnaði í sjónum í Skötufirði um miðjan janúar með þeim afleiðingum að kona og sonur hennar létust. Fjölskyldufaðirinn komst lífs af.

Að sögn Karls Inga Vilbergssonar, lögreglustjóra hjá lögreglunni á Vestfjörðum, bíður lögreglan eftir niðurstöðu. Eftir að hún berst verður hægt að loka málinu.

Bíll­inn var flutt­ur á Suður­land þar sem sér­hæfður bif­véla­virki rann­sak­ar hann, auk þess sem tækni­deild lög­regl­unn­ar kem­ur að rann­sókn­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert