Enn þá jarðsett á föstudögum

Kirkjugarðurinn á Akranesi.
Kirkjugarðurinn á Akranesi. Eggert Jóhannesson

Stytting vinnuvikunnar kemur ekki í veg fyrir að jarðsett verði eftir hádegi á föstudögum, eins og algengt er, að sögn Péturs Georgs Markan, samskiptastjóra Biskupsstofu. 

„Það er ekkert því til fyrirstöðu að jarða eftir hádegi á föstudögum ef tímasetningin hentar öllum,“ sagði Pétur í samtali við mbl.is. 

Almenna reglan er sú, að sögn Péturs, að prestar jarða í samráði við aðstandendur.

Þá benti Pétur á að það gæti vel verið að einstaka prestar væru með einhverjar útfærslur á vinnuvikunni sinni en bætti við að það væri þó alls ekki þannig að það væri almenn lína í kirkjunni að stytta vinnuvikuna á föstudögum. 

Jarðsetningar eftir hádegi á föstudögum munu því ekki heyra sögunni til. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert