Álmu í Álfhólsskóla lokað vegna myglu

Stjórnendur Álfhólsskóla vinna nú að ásamt kennurum og öðru starfsfólki …
Stjórnendur Álfhólsskóla vinna nú að ásamt kennurum og öðru starfsfólki að endurskipulagningu á kennslu sem raskast óneitanlega þegar loka þarf heilli álmu. Ljósmynd/Aðsend

Einni álmu Álfhólsskóla verður lokað frá og með fimmtudeginum 4. mars vegna myglu sem greinst hefur í þaki byggingarinnar. Lokunin er varúðarráðstöfun til að vernda nemendur og starfsmenn. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. 

Um er að ræða þann hluta húsnæðis Álfhólsskóla, Hjalla, sem kallast álma 5 og stendur í norðvesturhorni lóðar Álfhólsskóla, Hjalla, alveg við Álfhólsveg. Byggingin hýsir meðal annars stofur fyrir list- og verkgreinar auk sérkennslustofa. Álma 5 nær yfir um fjórðung Álfhólsskóla, Hjalla, að flatarmáli eða 1.130 fermetra. Í Álfhólsskóla, Hjalla, eru 5. til 10. bekkur Álfhólsskóla, alls um 400 nemendur.

Stjórnendur Álfhólsskóla vinna nú ásamt kennurum og öðru starfsfólki að endurskipulagningu á kennslu sem raskast óneitanlega þegar loka þarf heilli álmu. Niðurstaða endurskipulagningar mun liggja fyrir á allra næstu dögum en tekið skal fram að nemendum verður tryggð kennsla. 

Starfsmaður fór að finna fyrir einkennum

Ákvörðun um lokun var tekin í kjölfar þess að myglusveppur greindist í þaki álmunnar. Einnig mælist hækkaður raki undir botnplötu sem að öllum líkindum má rekja til stíflu sem fannst í drenlögn vestan við húsið. Verið er að greina sýni sem tekin voru úr gólfdúk til að kanna hvort mygla hafi náð fótfestu undir dúknum. 

Aðdragandi lokunarinnar er sá að starfsmaður fór að finna fyrir einkennum sem fylgja raka- og mygluskemmdum. Eftirgrennslan leiddi í ljós raka undir gólfdúk sem strax var gengið í að laga. Í framhaldinu var ákveðið að fara í ítarlegri skoðun á húsnæðinu og þá greindist myglusveppur í þaki álmunnar. Verið er að rannsaka hvort myglan hafi náð að hafa áhrif á loftgæði í kennslustofum, niðurstaða liggur ekki fyrir, en með öryggi nemenda og starfsfólks að leiðarljósi er álmunni lokað frá og með morgundeginum. 

Ekki er talið að um sambærilegar aðstæður sé að ræða í öðrum álmum byggingarinnar þar sem þakuppbygging er ólík. Þak álmu 5 hefur þá sérstöðu að þar er upphitað rými á 2. hæð og einangrað milli sperra. Í álmum 1-4 er loftrýmið kalt og einangrað beint ofan á steyptar loftplötur. Engu að síður verða tekin sýni í öðrum hlutum hússins og þau send til frekari greininga. 

Vinna að undirbúningi 

Ákvörðun um lokun var tekin af skólastjórnendum í samráði við stjórnendur á mennta- og umhverfissviði Kópavogsbæjar um leið og niðurstöður mælinga lágu fyrir og kynnt starfsfólki, stjórn foreldrafélagsins og skólaráði á fundum miðvikudaginn 3. mars og bréf sent á foreldra. Skólastjórnendur munu hitta alla nemendur á morgun, fimmtudag, og útskýra málið. 

Þá er unnið að undirbúningi útboðs fyrir endurbætur en stefnt er að því að framkvæmdum verði lokið áður en skólastarf hefst að nýju að loknu sumarleyfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert